Heim
Ungmennafélag Grundarfjarðar
Frí frá æfingum Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Þriðjudagur, 25 Maí 2010 08:25
Það verður frí frá æfingum á vegum UMFG í þessari viku nema að þjálfarar gefi annað upp. Æfingar á vegum UMFG hefjast aftur 1 júní.
 
Tindastóll - Grundarfjörður Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Föstudagur, 21 Maí 2010 09:38

Á morgun 22 maí spilar Grundarfjörður sinn fyrsta leik í 3 deildinni í rúm 20 ár. Þá munu strákarnir skreppa á Sauðarkrók og mæta heimamönnum í Tindastól á Sauðarkróksvelli. Tindastóll féll úr 2 deildinni í fyrra og samkvæmt spá fotbolti.net þá munu þeir staldra stutt við í 3 deildinni því að þeim er spáð sigri í 3 deild. Það er því ljóst að strákarnir í Grundarfjarðarliðinu ráðast ekki á garðinn þar sem hann er lægstur og væntanlega verður mikill hasar á morgun kl 14:00 þegar leikurinn byrjar.

Við óskum strákunum okkar góðs gengis á morgun.

 
Sundnámskeið Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Miðvikudagur, 19 Maí 2010 08:26

Sundnámskeið

 

Fyrirhugað er að halda sundnámskeið fyrir börn fædd 2003-2004 dagana 14.-18. júní, ef næg þátttaka fæst.  Námskeiðið verður 5 x 40 mínútur og  kostar 4.000 kr. sem greiðist í fyrsta tíma., en Grundarfjarðarbær greiðir niður hluta námskeiðsins

Sundkennarar verða Ásdís og Inga Magný og fer skráning fram hjá þeim.  Tímasetning námskeiðsins verður auglýst síðar.

Vonumst til að sjá sem flesta J

 

Kveðja,

Ásdís: 899-3942

Inga Magný: 862-2985

 
Síðasti blaktíminn Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Þriðjudagur, 27 Apríl 2010 11:24

Síðasti tími í blaki hjá krökkunum er fimmtudaginn 29 apríl.  En viljum við minna þá krakka sem fóru á blakmótið um daginn að skila búningum ef þau eru ekki búin að því.  Sjáumst svo hress í blaki eftir sumarfrí.

Kveðja

Stjón UMFG

 
Íslandsmót í krakkablaki Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Sunnudagur, 25 Apríl 2010 10:41

Helgina 17- 18 apríl  var farið á seinni hluta Íslandsmóts í krakkablaki sem fram fór í Digranesi í Kópavogi. Það voru 16 vaskir krakkar sem mættu til leiks.  Þar sem UMFG sendi ekkert lið á fyrra mótið sem haldið var í október og nóvember 2009 sem haldið var á Neskaupstað höfðum við ekki möguleika á Íslandsmeistaratitli í ár.  En nú fóru 3 lið frá UMFG og stóðu þau sig öll með sóma.  Þetta voru 7 krakkar sem spiluðu í 5 fl. mix og unnu sína leiki, 4 fl. stúlkur og lentu þær í 3 sæti í sínum flokk á þessu móti og svo 4 fl. drengja.  Viljum við óska þeim til hamingju því þessir krakkar voru prúð og stillt og  öll til fyrirmyndar.  Og viljum við þakka Aðalsteini þjálfara fyrir veturinn.

Kveðja

Blakráð UMFG

img_6200 as smart object-1

 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 Næsta > Síðasta >>

Síða 3 af 8

Tilkynningar

Æfingataflan fyrir sumarið er komin á netið.  Hér fyrir neðan er hægt að fá hana á pdf formi og prenta hana út.  ÆFINGATAFLAN

Spurningin

Hvaða íþrótt hefur þú mestan áhuga á?
 

Gestir á síðu

Það er/u 2 gestir inni

www.yoursite.com
Ungmennafélag Grundarfjarðar