Heim
Ungmennafélag Grundarfjarðar
Páskaeggjabingó Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Þriðjudagur, 23 Mars 2010 09:06

Vegna óviðráðanlegra orsaka þá þurftum við að færa páskaeggjabingóið upp í Framhaldsskóla.

Semsagt þá verður páskaeggjabingó kl 18:30 í sal FSN fimmtudaginn 25.03.2010

Spjaldið er á 500 kr. og við vonumst til að sjá sem flesta.

Stjórn UMFG

 
Páskaeggjabingó Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Fimmtudagur, 18 Mars 2010 14:46

Páskaeggjabingó verður haldið í Samkomuhúsinu fimmtudaginn 25.03.2010

Bingóið hefst kl. 18:30

Spjaldið kostar aðeins 500 kr.

UMFG

 
Frá ÍSÍ Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Mánudagur, 08 Mars 2010 10:09

 

Fjarnám ÍSÍ í

þjálfaramenntun!

Vorannarfjarnám 1. stigs almenns hluta þjálfaramenntunar ÍSÍ hefst 15. mars nk.  Námið tekur 8 vikur og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar.

Námið jafngildir íþróttafræði 1024 í framhaldsskólakerfinu og er metið sem slíkt.

Fjarnámið er öllum opið 16 ára og eldri sem áhuga hafa. Nemendur skila verkefni í hverri viku auk lokaverkefnis og krossaprófa.

Skráning er til 12. mars á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. eða í síma 514-4000.  Þátttökugjald er kr. 24.000.-

Allar frekari uppl. veitir sviðsstjóri fræðslusviðs ÍSÍ í síma 460-1467 og á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

 
Grundarfjörður spilaði æfingaleik Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Mánudagur, 01 Mars 2010 17:15

Síðastliðinn laugardag fóru strákarnir okkar úr Meistaraflokki Grundarfjarðar og spiluðu æfingaleik við Augnablik sem verður með þeim í riðli í sumar. Leikurinn var spilaður að Ásvöllum í Hafnarfirði við frekar erfiðar aðstæður þar sem að snjór og klaki voru á vellinum. Hvorugt liðið lét það nú á sig fá og spiluðu leikinn engu að síður.

Leikar fór svo þannig að Grundarfjörður fór með sigur af hólmi 2-1 og skoruðu þeir Ragnar Smári og Arnar Dóri mörkin.

Grundarfjörður kemur til með að spila fleiri æfingaleiki áður en alvaran hefst og munum við reyna að flytja fréttir af því jafn óðum. Nánar er hægt að lesa um leikinn á heimasíðu strákanna sem er http://grundarfjordur.123.is

Ragnar Smári Guðmundsson

 
Handboltanámskeið um helgina Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Mánudagur, 01 Mars 2010 17:14

Handboltanámskeið

Um næstu helgi 6. – 7. mars mun Bjarni Einarsson verða með annað handboltanámskeið fyrir börn og unglinga. Er þetta sama verð og síðast kr. 500,- fyrir tímann.

Laugardagur  6 mars
11:00 - 12:00  --  1-2-3-4 bekkur blandað strákar og stelpur
12:15 - 13:15  --  5-10 bekkur stelpur
13:15 - 14:15  --  5-7 bekkur strákar
14:15 - 15:15  --   8-10 bekkur strákar
15:15 - 16:15  --  Eldri en 16 ára

Sunnudagur   7 mars

11:00 - 12:00  --  1-2-3-4 bekkur blandað strákar og stelpur
12:15 - 13:15  --  5-10 bekkur stelpur
13:15 - 14:15  --  5-7 bekkur strákar
14:15 - 15:15  --  8-10 bekkur strákar
15:15 - 16:15  --  Eldri en 16  ára

Með kveðju

UMFG og Bjarni Einarsson

 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 Næsta > Síðasta >>

Síða 5 af 8

Tilkynningar

Æfingataflan fyrir sumarið er komin á netið.  Hér fyrir neðan er hægt að fá hana á pdf formi og prenta hana út.  ÆFINGATAFLAN

Spurningin

Hvaða íþrótt hefur þú mestan áhuga á?
 

Gestir á síðu

Það er/u 2 gestir inni

www.yoursite.com
Ungmennafélag Grundarfjarðar