Heim
Ungmennafélag Grundarfjarðar
Blaklið kvenna gerir það gott Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Mánudagur, 01 Mars 2010 17:13

Blaklið kvenna gerir það gott

Síðastliðna helgi hélt blaklið kvenna í Grundarfirði á Hvolsvöll að keppa í 3. deild í blaki.  Var þetta önnur helgin af þremur.  Voru þær  í 3. sæti eftir fyrsta mótið sem haldið var í Mosfellsbæ í október.  En nú gekk allt upp hjá stelpunum. Þær komu sáu og sigruðu, því þær unnu alla sína  leiki sem voru fimm talsins með 2 – 0 og er það frábær árangur.  Munu þær í framhaldinu keppa um 1. – 6. sæti í byrjun apríl og vonum að allt gagni eins vel og smurt og nú um helgina.  Óskum þeim til hamingju með árangurinn.

 
5 fl. kvenna gerir það gott Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Mánudagur, 22 Febrúar 2010 14:01

5.fl kvenna tók þátt í Grindinni 2010 sem haldin var í Grindavík sunnudaginn 21.febrúar. Stelpurnar spiluðu í Umbrodeildinni og unnu alla sína leiki í riðlakeppninni og spiluðu við Víði í úrslitaleik. Sá leikur endaði 0-0 en þar sem lið Snæfellsnes var með 12 stig út úr riðlakeppninni en Víðir aðeins 8 þá voru það stelpurnar frá Snæfellsnesi sem voru krýndar sigurvegarar.

7.fl kvenna spilaði fyrr um morguninn og höfnuðu þær í 3.sæti.

Strákarnir í 6.fl spiluð á móti í Keflavík laugardaginn 20.febrúar. Þar voru þeir með tvö lið eitt í Meistarardeildinni og annað í Þýskudeildinni og höfnuðu bæði liðin í 5.sæti í sínum deildum.

 
Blakleikur Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Sunnudagur, 21 Febrúar 2010 18:57

BLAK BLAK BLAK BLAK

Íþróttahúsinu Grundarfirði.

Heimaleikur UMFG karla.

Mánudaginn 22.2 2010

kl: 19.30 (hálf átta)

UMFG – Hrunamenn

Allir að mæta og hvetja strákana okkar til dáða.

 
Aðalfundur UMFG Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Þriðjudagur, 16 Febrúar 2010 13:20

Aðalfundur Ungmennafélags Grundarfjarðar

 

Aðalfundur Ungmennfélags Grundarfjarðar verður haldinn sunnudaginn 21.02.2010 á Hótel Framnesi kl. 16.00.  Boðið verður upp á léttar veitingar.

Einning viljum við minna á haldboltanámskeið sem verður 6 – 7 mars.  Sjá auglýsingu á grundarfjordur.is

 

  1. Skýrsla stjórnar
  2. Reikningar lagðir fram
  3. Önnur mál.

Stjórn Ungmennafélags Grundarfjarðar

 
Fréttir frá Meistaraflokki Grundarfjarðar Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Laugardagur, 13 Febrúar 2010 12:52

C-Riðill

Þá er riðlaskiptingin klár fyrir sumarið og óhætt að segja að við lendum í erfiðum riðli. Við erum í C-Riðli og hefjum leik á Sauðárkróki 22 maí næstkomandi.


Riðillinn okkar lítur svona út:

Augnablik
Grundarfjörður
KB
Léttir
Skallagrímur
Tindastóll
Ýmir

12 leikir á lið.


Leikirnir okkar eru sem hér segir en þetta er ekki staðfest og gæti því breyst.

Laugardagur 22. maí kl 14:00   Tindastóll - Grundarfjörður -- Sauðárkróksvöllur

Laugardagur 05. júní kl 14:00   Grundarfjörður - KB -- Grundarfjarðarvöllur

Laugardagur 12. júní kl 14:00   Ýmir - Grundarfjörður -- Fagrilundur

Mánudagur 21. júní kl 20:00     Grundarfjörður - Skallagrímur -- Grundarfjarðarvöllur

Föstudagur 25. júní kl 20:00      Léttir - Grundarfjörður -- ÍR völlur

Föstudagur 02. júlí kl 20:00       Grundarfjörður - Augnablik -- Grundarfjarðarvöllur

Laugardagur 10. júlí kl 14:00    Grundarfjörður - Tindastóll -- Grundarfjarðarvöllur

Föstudagur 23. júlí kl 20:00       KB - Grundarfjörður -- Leiknisvöllur

Þriðjudagur 27. júlí kl 20:00      Grundarfjörður - Ýmir -- Grundarfjarðarvöllur

Föstudagur 06. ágúst kl 19:00    Skallagrímur - Grundarfjörður -- Skallagrímsvöllur

Laugardagur 14. ágúst kl 14:00 Grundarfjörður - Léttir -- Grundarfjarðarvöllur

Föstudagur 20. ágúst kl 19:00    Augnablik - Grundarfjörður -- Smárahvammsvöllur

Þetta verður strembið en gaman. Það er alveg klárt.

Meistaraflokksráð UMFG

 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 Næsta > Síðasta >>

Síða 6 af 8

Tilkynningar

Æfingataflan fyrir sumarið er komin á netið.  Hér fyrir neðan er hægt að fá hana á pdf formi og prenta hana út.  ÆFINGATAFLAN

Spurningin

Hvaða íþrótt hefur þú mestan áhuga á?
 

Gestir á síðu

Það er/u 1 gestur inni

www.yoursite.com
Ungmennafélag Grundarfjarðar