|
Föstudagur, 12 Febrúar 2010 18:08 |
|
Aðalfundur UMFG verður haldinn sunnudaginn 21.febrúar kl. 16:00 á Hótel Framnesi.
kv. Stjórnin |
|
|
Fimmtudagur, 21 Janúar 2010 16:52 |
|
Í gær fóru Grundfirðingar suður í Reykjavíkurhrepp að keppa við Fylkir í 2. deild karla í Blaki. Í stuttu máli sagt þá var sú ferð ekki til frægðar. Fylkismenn voru ákveðnir í að vinna leikinn og gerðu það nokkuð auðveldlega 3-0 fyrir Fylki (25-17, 25-16, 25-18). Í deildinni er staðan sú að Hrunamenn og Fylkir eru jafnir með 12 stig en Hrunamenn með leik til góða og síðan eru UMFG, Hamar og Þróttur með 6 stig. Stjarnan 2 með 2 stig og Afturelding með ekkert.
Næsti leikur hjá Grundfirðingum er við Aftureldingu og er hann í Mosfellsbæ, Sunnudaginn 31. janúar kl. 13.30
Tekið af vef HSH |
|
Þriðjudagur, 19 Janúar 2010 16:49 |
|
Stelpurnar í 4.fl unnu sinn riðil á Futsal Íslandsmótinu á sunnudaginn. Úrslitakeppnin fer trúlega fram 6. eða 7.febrúar. Snæfellsnessamstarfið er búið að sækja um til KSÍ að úrslitakeppnin fari fram í Ólafsvík. 3.fl kvenna komst ekki áfram en stelpurnar þar stóðu sig engu að síður ágætlega.
Vonandi tekur KSÍ vel í umsókn um úrslitakeppnin verði í Ólafsvík.
Tekið af vef HSH
|
|
Þriðjudagur, 19 Janúar 2010 00:00 |
|
2.deild karla í blaki
Íþróttahúsið Grundarfirði
UMFG - Þróttur2 - 3-0 (25-13) (25-16) (25-19)
Í gærkvöldi tóku Grundfirðingar á móti Þrótturum í 2. deild karla í blaki. Töluverður munur var á liðunum í leiknum og eins og tölurnar segja náðu Þróttara aldrei að veita mótstöðu að ráði. Heimamenn voru ákveðnir að vinna leikinn og láta mistök sem voru gerð í fyrri leik liðana ekki trufla sig. Fyrsta hrina var frekar róleg, liðin skiptust á að skora en í stöðunni 5-5 fóru heimamenn að skríða framúr og unnu svo hrinuna nokkuð auðveldlega.
Í 2. hrinu náðu heimamenn strax góðri forystu og í undir lok hrinunnar var ungu strákunum skipt inn á og þeim leyft að klára hrinuna, náðu Þróttarar að skora nokkur stig og laga stöðuna en dugði ekki til. Í 2. hrinu voru áhorfendur og trommusveitin komin af stað og var það aðeins að trufla gestina. En um 90 til 100 manns voru á bekkjunum og er það klárt að stuðningur þeirra hefur mikið að segja fyrir leikinn.
Í 3. hrinu voru gestirnir aðeins sprækari og var staðan jöfn upp að 8-8 en þá sigu heimamenn fram úr og með stuðningi áhorfenda kláruðu þeir leikinn. Grundfirðingar eru nú komnir í 3. sæti deildarinnar,
Á morgun miðvikudaginn 20. janúar kl. 21 spila svo Fylkir og UMFG í Fylkishöllinni.
Tekið af vef HSH. |
|
Fyrsta Pub Quiz ársins í kvöld |
|
|
|
|
Þriðjudagur, 12 Janúar 2010 00:00 |
|
Pub Quiz nr 9 á dagskrá og nú er það Fánýtur fróðleikur þema. Síðasta Pub Quiz var MAGNAÐ. Aldrei hafa jafn margir borgað sig inn og síðast og þökkum við kærlega fyrir það, þetta var frábært. Við hvetjum alla til að mæta. Þetta kostar aðeins 500 kr á haus og rennur allur ágóðinn til styrktar Meistaraflokks Grundarfjarðar í knattspyrnu.
Þá er bara að taka á því í kvöld.
Meistaraflokksráð
|
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 7 af 8 |