Heim
Ungmennafélag Grundarfjarðar
Pub Quiz nr 8 í kvöld Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Þriðjudagur, 22 Desember 2009 00:00

Í kvöld, þriðjudaginn 22. des. fer fram á Kaffi 59 Pub Quiz nr 8 og er þemað að þessu sinni Grundarfjörður.

Við hefjum leik kl. 21:00 og aðgangur er aðeins kr. 500 sem rennur óskiptur til Meistaraflokks karla í knattspyrnu.

Gummi Gísla og Gunni Kristjáns hafa verið sveittir undanfarna daga við að semja spurningar fyrir þennan stórfenglega viðburð.

Við hvetjum alla til að mæta með jólaskapið og lyfta sér upp svona rétt fyrir jólin.

Meistaraflokksráð.

 

 
Grundfirðingar sigra í blaki Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Miðvikudagur, 16 Desember 2009 00:00

Á mánudagskvöldið tóku Grundfirðingar á móti Hamri frá Hveragerði í 2. deild karla í blaki. Leikurinn, sem fram fór í Grundarfirði, var mjög jafn og skemmtilegur. Með stuðningi áhorfenda og trommusveitarinnar náðu heimamenn að landa naumum sigri 3:2. Hrinurnar voru allar jafnar og spennandi eins og tölurnar bera með sér (25:22, 20:25, 25:22, 19:25 og 18:16). Þetta var annar sigur Grundfirðinga í 2. deildinni í vetur. Um 90 áhorfendur voru í íþróttahúsinu og var stuðningur þeirra mikilvægur í þessum mikla baráttuleik, sem var sá síðasti hjá Grundfirðingum á þessu ári í blakinu.

Af vef skessuhornsins

 
Ný síða UMFG Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Fimmtudagur, 24 September 2009 13:48

Ný síða UMFG er komin, endilega skoðið :)

 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 Næsta > Síðasta >>

Síða 8 af 8

Tilkynningar

Æfingataflan fyrir sumarið er komin á netið.  Hér fyrir neðan er hægt að fá hana á pdf formi og prenta hana út.  ÆFINGATAFLAN

Spurningin

Hvaða íþrótt hefur þú mestan áhuga á?
 

Gestir á síðu

Það er/u 1 gestur inni

www.yoursite.com
Ungmennafélag Grundarfjarðar