Heim
Ungmennafélag Grundarfjarðar
Kraftlyftingar Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Mánudagur, 05 Júlí 2010 16:37

Rúnar Geirmundsson varð evrópumeistari í kraftlyftingum núna á Akureyri 25 júní, og bætti íslandsmet í réttstöðulyftu um 22,5 kg, eða 182,5 kg. Honum tókst ekki að bæta íslandsmet í bekkpressu og í hnébeygju eins og hann stefndi á. það skiptir samt ekki máli þar sem að hann á íslandsmetin sjálfur fyrir. Rúnar var búinn að æfa mjög stíft í nokkra mánuði fyrir þetta mót. Hann tók mataræðið í gegn og léttist um 3 kíló og var ekki nema 64 kíló, semsagt tók næstum því þrefalda líkamsþyngd í réttstöðulyftu og fékk alveg helling af stigum, þar sem að úrstlitin ráðast af því hversu þungur þú ert á móti því hversu miklu þú lyftir. Þannig að hann ætlar að reyna að vera í -67,5 kg flokknum og taka 200 kíló í réttstöðulyftu í nóvember.

Heiðar Geirmundsson (bróðir Rúnars) er búinn að þjálfa hann frá því að hann byrjaði og ætla þeir bræður að fara út til Florida og keppa saman á heimsmeistaramóti í kraftlyftingum, Rúnar sagði í viðtali við skessuhornið fyrir stuttu að hann ætlaði að vera sterkastur í heimi og núna tekur við eitt og hálft ár í stífum æfingum, þar sem að hann stefnir á að verða heimsmeistari í 75 kg flokki í Nóvember 2011 á Florida. Heisi fer með honum út sem þjálfari og ætlar sjálfur að verða heimsmeistari.

36725_458428039026_761069026_6273031_2493355_n

Nú eru þeir bræður að fara í það að safna styrkjum fyrir ferðina því að þetta mun kosta sitt. Áætlað er að þetta ferðlag muni kosta þá  hátt í milljón.

Rúnar vill koma fram miklum þökkum til Grundarfjarðarbæjar, UMFG og HSH sem styrktu hann til Akureyrarferðarinnar.

Núna eigum við Grundfirðingar evrópumeistara í Kraftlyftingum og verður gaman að sjá hvort að við munum eignast heimsmeistara á næsta ári. Áfram Rúnar.

 
Breyttur æfingatími í frjálsum Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Mánudagur, 05 Júlí 2010 16:35
Breyttur æfingatími í frjálsum og sundi hjá 13 ára og eldri.  Þau færast upp í hópin sem er kl 11:30 og 12:30 á þriðjudögum og fimmtudögum.  Það eru svo margir að fara í burtu í júlí og það er alveg eins gott að sameina æfingar eins og að vera dinglast yfir engu.  Þetta mundi þá taka gildi þriðjudagin 6 júlí, en þau vita samt flest af þessu sem þurfa vita þetta.
Í staðin ætla ég að reyna að fara með sem flesta í miðhópnum í Borgarnes á æfingu þar annað hvort með UMSB eða fá afnot af vellinum sem ætti ekki að vera nokkurt mál.  Ég þarf hvort sem er að fara 2 -3 ferðir í Nesið til að komast á bókasafnið og ætlaði þá að slá tvær flugur í einu höggi.  Krakkarnir gætu farið í sund á meðan ég næ í bækurnar sem mig vantar, eins get ég þá notað tækifærið fyrir sundkrakkana og látið þau taka nokkrar stungur af pöllunum til að læra að stinga sér af þeim.
Kveðja
Kristín H.
 
Fótboltaskólinn að Laugarvatni Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Mánudagur, 14 Júní 2010 13:44
Ungmennafélag Grundarfjarðar sendir tvo efnilega krakka í 4 fl. kvk. og 4 fl.kk. í  fótboltaskóla á Laugarvatni á hverju ári. Að þessu sinni voru það Sigrún Pálsdóttir og Kristján Kristófersson sem fóru frá UMFG í ár.  Óskum við þeim velfarnaðar í fótboltaskólanum.
Stjórn UMFG
 
Frjálsíþróttaráð Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Mánudagur, 14 Júní 2010 13:42
Stjórn UMFG leitar nú að fólki sem hefur áhuga á uppbyggingu á frjálsíþróttastarfi hér í Grundarfirði.  Þar sem enginn er í frjálsíþróttaráði bráðvantar okkur gott fólk í ráðið.  Ekki getum við ætlast til þess að þjálfari sjái um alla umgjörð fyrir frjálsar.  Nú leitum við til ykkar foreldrar sem hafa áhuga á frjálsum að hafa samband við stjórn UMFG sem fyrst þar sem sumarmótin eru að fara af stað.
Kveðja
Stjórn UMFG
Tómas 897 1466
 
35. öldungamót í blaki Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Miðvikudagur, 26 Maí 2010 08:47

Helgina 13 – 16 maí  fóru 3 lið frá Ungmennafélagi Grundarfjarðar á öldungamót í blaki  sem haldið var í Mosfellsbæ í ár. Voru þetta 2 kvennalið og 1 karlalið.  Er alltaf mikill spenningur fyrir þessum mótum og var eins í ár.  Konunar fjárfestu sér í nýjum peysum og nýjum keppnistreyjum og voru þær  voða flottar og var það Guðmundur Runólfsson hf. sem styrkir kvennaliðin í ár eins og undafarin ár og viljum við þakka þeim kærlega fyrir þeirra stuðning.  Karlaliðið spilaði í 3. Deild og höfnuðu í 5 sæti og þar með halda þeir sér í deildinni sem er bara flottur árangur hjá þeim.  Annað kvennaliðið spilaði í 4 deild þar sem þær féllu úr deild í fyrra og markmiðið var að halda sér í deild og það tókst hjá þeim en það var hitt kvennaliðið sem vann sína deild sem var 10 deild með glæsibrag og töpuðu einungis 1 hrinu og fara því upp um deild á næsta ári en verður það haldið í Vetmannaeyjum. Skoða má myndir og úrslit  á http://mosold.is/ . Viljum við óska öllum til hamingju með þennan flotta árangur.  Viljum við þakka Aðalsteini fyrir veturinn þar sem hann verður ekki með okkur á næsta vetur og óskum honum velfarnaðar á nýjum slóðum.

ma 2010 039

 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 Næsta > Síðasta >>

Síða 2 af 8

Tilkynningar

Æfingataflan fyrir sumarið er komin á netið.  Hér fyrir neðan er hægt að fá hana á pdf formi og prenta hana út.  ÆFINGATAFLAN

Spurningin

Hvaða íþrótt hefur þú mestan áhuga á?
 

Gestir á síðu

Það er/u 1 gestur inni

www.yoursite.com
Ungmennafélag Grundarfjarðar