| 35. öldungamót í blaki |
|
|
|
| Skrifað af Administrator |
| Miðvikudagur, 26 Maí 2010 08:47 |
|
Helgina 13 – 16 maí fóru 3 lið frá Ungmennafélagi Grundarfjarðar á öldungamót í blaki sem haldið var í Mosfellsbæ í ár. Voru þetta 2 kvennalið og 1 karlalið. Er alltaf mikill spenningur fyrir þessum mótum og var eins í ár. Konunar fjárfestu sér í nýjum peysum og nýjum keppnistreyjum og voru þær voða flottar og var það Guðmundur Runólfsson hf. sem styrkir kvennaliðin í ár eins og undafarin ár og viljum við þakka þeim kærlega fyrir þeirra stuðning. Karlaliðið spilaði í 3. Deild og höfnuðu í 5 sæti og þar með halda þeir sér í deildinni sem er bara flottur árangur hjá þeim. Annað kvennaliðið spilaði í 4 deild þar sem þær féllu úr deild í fyrra og markmiðið var að halda sér í deild og það tókst hjá þeim en það var hitt kvennaliðið sem vann sína deild sem var 10 deild með glæsibrag og töpuðu einungis 1 hrinu og fara því upp um deild á næsta ári en verður það haldið í Vetmannaeyjum. Skoða má myndir og úrslit á http://mosold.is/ . Viljum við óska öllum til hamingju með þennan flotta árangur. Viljum við þakka Aðalsteini fyrir veturinn þar sem hann verður ekki með okkur á næsta vetur og óskum honum velfarnaðar á nýjum slóðum.
|
| LAST_UPDATED2 |